jæja þá eru bara tveir dagar þangað til að settur dagur rennur upp,
en auðvitað gæti barnið látið býða eftir sér þannig að maður verður
bara að segja að það á eftir að koma einhverntíman á næstu 2 vikum
við fórum í mæðraskoðun saman á miðvikudaginn var, þar kom í ljós
að barnið er aðeins farið að sýga neðar í grindina en það er ekki
búið að skorða sig enþá, þannig að ef að ég missi vatnið þá verð ég
að leggjast strax niður

þá fór ég að hugsa ef að ég myndi nú
missa það einhverstaðar úti á götu, hvað það væri nú hallærislegt
að leggjast kanski á torgið og býða þar eftir sjúkrabílnum

en
annars lýtur bara allt vel út, hjartslátturinn er reglulega góður
og slær á bilinu 140 - 160 slög á mínútu

og bumban mín er alltaf
að stækka.... en sjálf hef ég ekki þyngst neitt svakalega, ég er
búin að þyngjast um 7 kg. síðan ég varð ólétt og það er víst bara
rosalega gott

annars er ekkert mikið að ske hjá mér, maður er bara að slappa af
og reyna að fara í gönguferðir svona inn á milli til að koma þessu
einhvað af stað

eða bara til að hressa sig aðeins við, maður er
auðvitað farin að vera pínu þreyttur á þessu ástandi... ég verð svo
fegin þegar þetta er allt búið
svo vil ég bara minna fólk á að skrifa í gestabókina mína.... og
kanski kommenta ef að það nennir.... gaman að sjá svona hverjir eru
að fylgjast með og svona